4 fléttur 500 gr hveiti 1 bréf þurrger 1 tsk salt ½ tsk sykur 2 ½ dl ylvolg mjólk 2 msk súr rjómi 40 gr lint smjör 1 rauð paprika 1 græn paprika 1 stk chilipipar 1 meðalstórlaukur 2 msk olía 1 eggjarauða 2 msk sesamfræ Þurrefnin ásamt geri sett í skál, mjólkinni, súra-rjómanum og smjörinu hnoðað saman við. Breiðið yfir deigið og látið lyfta sér á hlýjum stað í 30 mín. Grænmetið er hreinsað og skorið smátt. Panna hituð og grænmetið létt steikt í um 3 mín, það síðan kælt. Þegar deigið er búið að lyfta sér er grænmetinu hnoðað saman við og deiginu skipt í fernt. Hverjum bita er skipt í þrennt og mótaðar lengjur sem eru fléttaðar saman. Flétturnar settar á smurða bökunarplötu og látnar lyfta sér. Penslaðar með eggjarauðu og sesamfræi stráð ofan á þær. Ofninn hitaður í 200°C og bakað í miðjum ofni í 30 mín. '********************************************************************
Gróft veislubrauð ½ dl hörfræ ½ dl sesamfræ 1 dl sólblómafræ ½ dl rúgkjarnar 4 dl vatn 8 dl hveiti 1 dl hveitiklíð ¾ msk salt 2 ½ tsk þurrger 1 lítið egg 3 ½ dl volgt vatn mjólk til penslunar ofan á hörfræ, sesamfræ og sólblómafræ. Leggið fræin í bleyti yfir nótt. Hellið vatninu af fræjunum og blandið megninu af hveitinu út í ásamt hveitiklíði, salti, þurrgeri, eggi og vatni. Hnoðið öllu saman og látið deigið hefast á hlýjum stað í 60 mín. Hnoðið afganginum af hveitinu saman við og skiptið deiginu í sjö hluta og mótið kúlur úr þeim. Látið eina kúlu í miðjuna og raðið hinum í kring. Látið hefast í 45 mín og penslið með mjólk, stráið fræjum ofan á til skrauts. Bakið neðarlega í ofni við 225°C í 35-40 mín. ******************************************************************** Heimabakað brauð 800 gr hveit eða 500 gr hveiti og 300 gr heilhveiti 1 msk sykur 100 gr sólblómafræ 100 gr sesamfræ 4 tsk lyftiduft kúfaðar 1 tsk matarsódi 1 tsk salt 5 dl súrmjólk 2 ½ dl vatn 1 stk egg Hrærið saman öllu hráefni nema sesamfræum og eggi. Notið ekki hrærivél. Reinið að vinna deigið sem minnst svo það verði ekki seigt. Setjið deigið í tvö smurð jólakökuform og penslið með eggi og stráið sesamfræum yfir. Bakið við 175°C í 50 mín. ********************************************************************** Hveitibrauð 4 bollar hveiti 4 tsk lyftiduft 4 tsk sykur 1 tsk salt 2 glös mjólk Allt hnoðað saman í hrærivél og sett í smurt jólakökuform, mjólk hellt yfir deigið í formunum, bakað við 190°C í 60 mín | *****************************************************************
Rúgbrauð 1 15 bollar rúgmjöl 3 bollar heilhveiti eða hveiti 3 barnaskeiðar þurrger 3 tsk salt 1 ½ l mjólk og vatn til helminga Öllu hrært saman og sett í svartan pott eða mjólkurfernur og bakað í 10 kls við 100°C. ************************************************************** Rúgbrauð 2 4 bollar hveiti 4 bollar heilheiti 4 bollar rúgmjöl 500 gr síróp 8 tsk natron 4 tsk salt 8 bollar súrmjólk Öllu hrært saman og bakað í stórri kökudós eða svörtum potti við 170°C í 4 kls. | ******************************************************************** Franskbrauðsdeig 1 l vatn 75 gr nýtt pressuger 30 gr salt 20 gr sykur eða 50 gr record 1800 gr hveiti 75 gr lint smjörlíki eða olía (sleppt ef notað er record) 1 eggjahvíta til penslunar. Aðferð: Við deiggerð þarf að beita nákvæmni í mælingu allra efna. Þykkt deigsins þarf að vera mátuleg og er best stjórnað með því að setja vökvann út í hveitið. Mælið öll efnin nákvæmlega. Setjið efnin í réttri röð í deigið og hnoðið það í 10-15 mín. 1. Vatn/mjólk, nýtt pressuger, sykur, salt, egg, hveiti og fituefni. 2. Hveiti, þurrger, salt, sykur, fituefni eða record og vatn/mjólk. Hefing: Eftir að deigið er fullmótað er það látið hefast 2 x 15 mín. Hnoðað á milli (loftið hnoðað úr deiginu) fyrir mótun er deigið hnoðað og síðan vigtað í réttar stærðir. Deigið mótað og penslað með eggjahvítu og látið hefast að fullu í rökum ofni við 27°C. Þegar brauðið er fullhefað er það sett í 200-230°C heitan ofn og rakinn hafður í ofninum fyrstu mínúturnar. Þegar brauðið er bakað eða eftir ca. 20 mín. Er það látið á rist og kælt. Brauðin geymast best ef þau eru vel bökuð og stökk að utan þannig að rakinn haldist í þeim. Ef þau eru sett í plastpoka þá verða þau seig og mygla fyrr. *****************************************************************
750 gr soðnar kartöflur 1 kg hveiti 4 tsk lyftiduft 4 tsk salt 3 ½ dl mjólk Hakkið kartöflurnar og blandið öllu hráefninu saman, hnoðið og fletjið út í hringlóttar kökur og bakið á pönnu við meðal hita. | *********************************************************************
4 dl mjólk 25 gr þurrger 1 dl síróp ½ tsk salt 6 dl rúgsigtilmjöl ½ dl hveitiklíð 5 dl hveiti vatn, síróp og hveitiklíð til penslunar Gerið er leyst upp í 37°C heitri mjólkinni. Sírópi, salti, rúgsigtilmjöli, klíði og um helmingi hveitisins bætt út í og hnoðað þar til hætt er að loða við skálina. Stráið hveiti yfir og hyljið deigið með klút, látið deigið hefast þar til að rúmmál þess hefur tvöfaldast. Hnoðið þá afganginum af hveitinu saman við og mótið tvö brauð, látið hefast í 30 mín, penslið með sírópi og stráið hveitiklíði yfir. Bakið við 200°C í 40-50 mín. ******************************************************************** |
1 egg 150 gr sykur(um 3 dl) 2 þroskaðir bananar 250 gr hveiti(um 5 dl) 1/2 tsk matarsódi 1 tsk salt Þeyta egg og bæta sykri saman við í skömmtun,þeytt vel saman. Merja bananana og hræra saman við.Sigta saman hveiti og matarsóda og salt og hræra léttilega saman við með sleif. Sett í vel smurt aflangt form 1 1/2 l,og bakað við 180 í 45 min. | |